Masoor Daal
Krydduð súpa úr rauðum linsubaunum2 bollar rauðar linsubaunir
2 tsk salt
1,9 l vatn
3 msk niðurskorin engiferrót (skorin í 1 sm strimla)
1 tsk malað cumin
1 tsk malaður kóríander
¼ bolli ghee
1 msk túrmerik
½ tsk cayenne pipar
1 tsk svört sinnepsfræ
1 heill þurrkaður rauður chillipipar
salt
4 msk kramið cilantro
1 msk ghee
1 tsk cuminfræSkolaðu linsubaunirnar og settu þær til hliðar. Láttu koma upp suðu á vatni með salti. Bættu við linsum og sjóddu í 15 mín. Lækkaðu hitann og láttu þær krauma þar til þær verða mjúkar. Bættu við engiferrót, cumin og kóríander. Hitaðu upp einn fjórða bolla ghee í lítilli pönnu. Bættu við túrmerik, cayenne pipar, sinnepsfræjum og rauðum chilipipar. Þegar sinnepsfræin fara að springa, taktu af hitanum og bættu út í linsurnar. Sjóða þar til baunirnar eru mjög mjúkar og bragðið hefur blandast saman. Áferðin á að vera mjög súpukennd, bættu því við vatni eftir þörfum. Þegar tími er kominn til að setja hana á borðið, hrærðu þá út í hana krömdum cilantro. Hitaðu 1 msk ghee í lítilli pönnu yfir meðal hita. Bættu við cumin fræjum og steiktu þar til þau poppa og gefa frá sér ristaðan keim. Bættu þessu ofan á súpuna - ekki hræra. Skreyttu með aðeins meira cilantro og cayenne og settu hana svo á borðið.
Mung Baunir og hrísgrjón með grænmeti
Þessi samsetning, mungbaunir og hrísgrjón gefur af sér mjög jafnvægisríka próteinsamsetningu og ef framreitt á þennan hátt þá verður það mjög auðmelt. Hægt er að nota hvaða grænmeti sem er, t.d. gulrætur, zucchini, sellerí.
4 lítrar vatn
1 bolli mung baunir
2 bollar basmati hrísgrjón
½ bolli niðurskorin engiferrót
1-2 laukar, skornir
½ rif af hvítlauk
2-8 bollar niðurskorið grænmeti
2 msk ghee eða olía
½ tsk kraminn rauður chilipipar
2 tsk turmerik
1 msk malaður kóríander
½ tsk svartur pipar
2 tsk garam masala eða karrý
½ tsk malað cumin
2 tsk salt eða eftir smekkHitaðu vatn í potti. Skolaðu mungbaunirnar og settu út í vatnið. Sjóða þar til baunirnar byrja að springa (um 30 mín). Ef þú notar heil basmati hrísgrjón, sjóddu þau þá með baununum (í um 30 mín) en ef þú notar hvít basmatigrjón geturðu bætt þeim út í eftir hálftíma. Flysjaðu og skerðu niður engiferrót, lauk og hvítlauk. Bættu út í baunir og hrísgrjón. Sömuleiðis grænmetið.
Hitaðu ghee í lítilli pönnu á meðalhita. Bættu út í það kryddinu og láttu það krauma í 30 sekog hrærðu í. Bættu út í mungbaunirnar og grjónin. Láttu þetta sjóða þar til allt er vel soðið og orðið mjúkt. Bættu út í salti eða td Bragg Aminos eða Tamari sojasósu eftir þörfum. Matreiðslutími er um 1 ½ tími.