Ný stundaskrá fyrir vorönn 2011
Kennsla hefst mánudaginn 10. janúar
Mánudaga kl. 17:10 - 18:25
Kraftmikið líkamlegt jóga til að losa um streitu og spennu. Leysir orku úr læðingi og leyfir henni að flæða óhindrað á ný.
(meira)
***
Kröftugt,
markvisst og umbreytandi jóga.
Styrkir innkirtlakerfið, taugakerfið og líkamann í heild
og skilar strax árangri í formi aukinnar orku og vellíðunar.
Hefst 11. janúar.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl 17:10
(meira)
***
Fjögurra vikna námskeið, hefst 10. janúar.
Kennt verður mánudaga og fimmtudaga kl. 18:40
Farið verður í undirstöðuatriði í Kundalini jóga s.s. öndun, jógastöður, orkustöðvarnar, líkamana tíu, hugleiðslu, slökun og það hvernig við getum nært líkama og sál í daglegu lífi.
(meira)
***
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 7 - 8:15
Kennari Estrid Þorvaldsdóttir
Þegar þú gerir jógaæfingar á morgnana þá byggir þú upp viljastyrkinn þinn, sjálfstraust og einbeitingu. Fyrst um sinn getur það tekið á en síðar fer það að veita vellíðan og jákvæða upplifun. Hugleiðsla hreinsar undirvitundina. Best er að hugleiða áður en sólin rís.
***
Mánudaga og fimmtudaga kl. 12
Kundalini jóga kennir þér að öðlast sterkt ónæmiskerfi, kröftuga innkirtla, sterkt taugakerfi, góða blóðrás og að verða meðvitaður um þau áhrif sem venjur þínar hafa.
(meira)
***
Kennaranámið gefur þér grunninn að árangursríkri jógaiðkun fyrir lífstíð og eykur starfsmöguleika hvar sem er í heiminum.
Hamingja er fæðingarréttur þinn
- Yogi Bhajan
(meira)
Kraftmikið líkamlegt jóga til að losa streitu og spennu. Leysir orku úr læðingi og leyfir henni að flæða óhindrað á ný. Jógísk heimsepki gefur innsýn inn í hlutverk karlmannsins í samfélaginu, sambönd og fjölskyldu. Jóga styrkir hlutlausa hugann, eykur einbeitingu og nærir æðruleysið.
Streita er algengasta dánarorsökin á Vesturlöndum. Á krefjandi tímum eins og nú blasa við, er blátt áfram nauðsynlegt að tileinka sér leiðir til að takast á við álag og erfiðleika. Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan er mjög heildrænt form af jóga sem styrkir alla þætti manneskjunnar.
"Þekking verður raunveruleg viska aðeins þegar þú upplifir hana í hjartanu og með allri verund þinni." Yogi Bhajan
Æfingarnar eru markvissar, gefa okkur aukinn líkamlegan styrk og sveigjanleika auk
þess að efla taugakerfi, innkirtlakerfi og ónæmiskerfi og draga úr streituhormónum
eins og adrenalíni og cortisol.
Árangurinn er meiri orka, einbeiting, vellíðan og aukin sjálfsvitund. Kundalini
jóga hentar sérstaklega vel fyrir nútímafólk sem verður fyrir áreiti úr öllum áttum.
Það er bæði fyrir stirða og liðuga, unga sem aldna og vana jafnt sem óvana jógaiðkendur.
Tímarnir byggja á eflandi líkamsæfingum, meðvitaðri og kröftugri öndun, hugleiðslu og djúpri slökun.
"Kundalini jóga er einstök tækni sem hefur það markmið að vekja vitund þína og leiða þig inn í þitt upprunalega sjálf. Að birta þitt innsta eðli. Það kennir þér að öðlast sterkt ónæmiskerfi, kröftuga innkirtla, sterkt taugakerfi, góða blóðrás og að verða meðvitaður um þau áhrif sem venjur þínar hafa. Kundalini jóga er fljótvirkasta leiðin til að gefa okkur beint samand milli líkama, hugar og sálar." Yogi Bhajan, meistari í Kundalini jóga.
Líf okkar byggir á slætti hjartans en ekki hugsunum hugans" Yogi Bhajan
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:10.
"Þegar hugur þinn líkami og sál eru undir þinni stjórn og í jafnvægi verður þú glæsileg; aðlaðandi; það fyllir þig helgi; gefur þér virðingu og visku." Yogi Bhajan
Nánari upplýsingar: Guðrún s: 896 2396
"Kundalini jóga kennir þér að öðlast sterkt ónæmiskerfi, kröftuga innkirtla, sterkt taugakerfi, góða blóðrás og að verða meðvitaður um þau áhrif sem venjur þínar hafa." Yogi Bhajan
Námskeiðið:
Fjögurra vikna námskeið. Hefst þriðjudaginn 11. janúar.
Kennt verður mánudaga og fimmtudaga kl. 18:40
Nánari upplýsingar: Guðrún s: 896 2396
Æfingarnar eru markvissar og auka súrefnisupptöku og blóðflæði, styrkja bæði tauga-, innkirtla- og ónæmiskerfið og draga úr streituhormínum eins og adrenalíni og kortisól. Hver tími byggir á öndunaræfingum, kröftugum æfingum fyrir líkamann, hugleiðslu og slökun. Árangurinn er aukin orka, vellíðan og einbeiting. Og hækkuð sjálfsvitund.
If you want to be sane, you have to do two things every day: sweat and laugh.
- Yogi Bhajan
Mánudaga og fimmtudaga kl. 12
Nánari upplýsingar: Guðrún s: 896 2396
Eftir forskrift Yogi Bhajan.
Hefst 1. október 2010.
Hamingja er fæðingarréttur þinn
- Yogi Bhajan
Kennaranám í Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan er ferðalag sem veitir þér nýja sýn á sjálfa-n þig og lífið. Hvort sem þú hefur áhuga á að dýpka þína eigin upplifun og skilning á Kundalini jóga eða vilt öðlast jógakennararéttindi þá er þetta tækifæri til að virkja kraftinn sem býr innra með þér.
Kennaranámið gefur þér grunn að árangursríkri jógaiðkun fyrir lífstíð og eykur starfsmöguleika hvar sem er í heiminum.
Ef þú ætlar að læra eitthvað skaltu lesa um það, ef þú vilt vita eitthvað, skaltu skrifa það niður. Ef þú ætlar að verða MEISTARI á einhverju sviði, skaltu kenna það.
- Yogi Bhajan
Í gegnum þetta umbreytandi nám getur þú:
Þekking verður aðeins raunveruleg viska þegar þú upplifir hana af öllu hjarta og allri verund þinni.
Yogi Bhajan
Þú lærir um:
Kennt verður í þrjá daga í senn, fimm helgar og í lokin verður kennt í 5- 6 daga úti á landi. Auk þess verða þrír dagar í æfingakennslu. Námskeiðið dreifist yfir veturinn, frá september til maí.
Kennarar eru alþjóðlegur hópur kennara með mikla reynslu. Sá sem leiðir námið er Shiv Charan Singh frá Portúgal / London og kennir hann einnig lokavikuna.
Nánari upplýsingar í s:8962396 (Guðrún Arnalds) 8953020 (Helga Arnalds).
Í þessu námi sem dreifist yfir átta mánuði lærir þú að höndla breytingarnar sem nú standa yfir á hinu hnattræna orkusviði. Til þess að geta það þarftu að kunna að beina athyglinni að innkirtla- og taugakerfinu, læra aðferðir til að næra það og viðhalda svo það starfi af fullum krafti. Þú lærir hvernig þú getur fylgst daglega með nauðsynlegu jafnvægi í líkamsstarfseminni, tengingunni milli huga, líkama, tilfinninga og anda. Þetta nám gerir þig meðvitaða(n) um þá næmni sem allir þurfa á að halda þegar hin i Nýa Öld gengur í garð.
Við lifum í menguðu umhverfi, í samfélagi þar sem áhersla er á deyfandi lyf og skammtíma kreppulausnir þar sem innri víddir manneskjunnar eru að engu hafðar. Þessar röngu áherslur hafa skapað miklar þjáningar. Undirmeðvitundin er í aðalhlutverki og við gerum okkur enga grein fyrir því hvernig við meðtökum lífið. Við leitum svara í fortíðinni við nútíð og framtíð án þess að sjá að fortíðin er ekki til nema sem hugarburður í undirmeðvitund okkar. Við festumst í þessu fari og það myndast stífla á leið okkar fram á við. Kundalini jóga gefur okkur tæknilega færni til að meðhöndla undirmeðvitundina, bæði fyrir einstaklinga og samfélag. Við lærum að hreinsa undirmeðvitundina til að gera ekki sömu mistökin aftur og aftur og hætta að lifa okkur inn í sársauka sem tilheyrir fortíðinni. Þetta er mikilvægasti lærdómur okkar tíma.
Fyrsti nemandinn sem þú færð til að kenna ert þú sjálf(ur). Og eins og loginn á einu kerti getur kveikt á þúsund kertum, þá verður þú fyrst að kveikja á þinni eigin vitund. Vektu þína eigin meðvitund. Þá geturðu hjálpað öðrum. Þá geturðu þjónað öðrum og lagt þitt af mörkum. Þú getur lagt fram þinn skerf til að hjálpa mannkyninu að stíga inn í Nýja Öld og láta drauminn um heimsfrið rætast.
Dragðu djúpt inn andann. Hlustaðu á þína eigin sál. Gríptu þetta tækifæri.
Þú átt það skilið. Það bíða margir eftir þinni hjálp.
The great pressures of modern society... can be relieved by this science of the whole person which is known as Kundalini Yoga
Þessi kennaraþjálfun var alveg mögnuð og margar mjög sterkar og óvæntar upplifanir, það að finna að það sé haldið svo vel utan um mann og haldið í hendina á manni þegar maður er að kafa djúpt inná við, gefur öryggi, kjark og þor til að finna sálina sína og standa andspænis sjálfum sér.
Brynhildur Stefánsdóttir
Kennaranámið var rosaleg upplifun sem leyfði mér að sameina andleg gildi og daglegt líf. Námið hélt áfram eftir að formlega náminu var lokið og við fengum sífellt eitthvað með okkur heim að íhuga.
Þetta breytti lífinu mínu gjörsamlega.
Hinrik Ólason, nemi
Besta akademia sem ég hef komist í. Námið gefur manni verkfæri fyrir lífið, samskipti sambönd og fyrst og fremst tækifæri til þess að verða minn eiginn kennari og geta miðlað því til annara að finna sinn innri kennara.
Kennaranámið hefur gefið mér nýtt líf, úthald og tækifæri til að fara inná við bæði í mig og inn í samfélagið. Ég hef lært leiðir til að vakna og leiðir til að slaka. Leiðir til að halda einbeitingu, leiðir til að losna við óþarfa tilfinningar allt sem ég hef öðlast næ ég að gefa áfram.
Estrid Þorvaldsdóttir
Ég lít á það sem mikið happ að hafa farið í gegnum þetta nám. Það væri langur listi ef ég færi að telja upp allt það gagn sem ég hef haft af því að iðka kundalini jóga. Hitt væri áreiðanlega fljótlegra að telja upp - það sem það hefur ekki gert fyrir mig. Þetta nám var hverrar krónu virði.
Hallveig Thorlacius, brúðuleikari
Kundalini kennaranámið veitti mér nýja og ferska innsýn í lífið. Ég öðlaðist bæði hagnýta og djúpa leið til að skynja og skilja sjálfa mig- sem og umheiminn - þær hröðu samfélagsbreytingar sem við búum við, hvernig nýta má jóga til að takast á við þær og standa með báða fætur á jörðinni sem helg, hraust og hamingjusöm kona. Ég naut þess í botn að læra um lífið og tilveruna frá nýju sjónarhorni með úrvalskennurum. Wahe guru
Harpa Barkardóttir,
Námið gaf mér dýpri reynslu af jóga og hvatti mig til frekari ástundunar. Kundalini jóga hjálpar mér að gefa ytra og innra umhverfi mínu betri gaum þannig að ég er meðvitaðari um á hvaða leið ég er.
Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, sálfræðingur
Kennaranám í Kundalini er besta ferðalag sem ég hef farið í. Dásamlegt ferðalag inn á við með Yoga Bahjan sem engan enda tekur:)
Elsku Auður, Guðrún og Shiv innilegar þakkir fyrir yndislega leiðsögn og fyrir að fá að vera þáttakandi. Sat Nam,
Kristjana, (Charamdev Kaur)
Kennaranámið var mjög gagnlegt, ekki bara fyrir mig sem jógakennara heldur líka sem manneskju, mjög umbreytandi. Kennararnir voru sterkir á sínu sviði. Hópurinn var yndislegur og öll umgjörðin. Ég er mjög þakklát að ég skyldi fá tækifæri til að fara í gegnum þetta að sumu leiti erfiða en gagnlega nám.
Arnþrúður Dagsdóttir, kennari
Hér eru nokkur dæmi um ávinning af náminu;
Persónulegur þroski
Styrkir jógaiðkun / hugleiðslu
Kennir okkur að breyta vanamynstrum
Aukið sjálfstraust
Bætt sjálfsþekking
Hugleiðsla til að hreinsa undirvitund og kyrra hugann
Lærum að styrkja taugakerfið
Við lærum að auka langlífi líkama og heila
Öðlast tæki til að höndla streitu
Auka vellíðan og geislalíkamann
Innri friður og ró
Umhverfi sem styður þig gegnum breytingar
Nærir samkennd
Tengir þig við og dýpkar sambandið við sálina
Styrkir allar orkustöðvar
Jóga / hugleiðsla fyirr ákveðin heilsumarkmið
Dýpkar upplifun á jóga og hugleiðslu
Lærum að kenna í styrkjandi umhverfi
Kynnast tækifærum til að kenna Kundalini jóga
Færir þig frá þvi að vera nemandi og í það að vera kennari
Lærum að anda og kenna öndun
Aukin meðvitund um öndunina
Hreinsa blóðið og beinmerginn
Læra að slaka á
Bætt samskipti
Shiv Charan Singh; er eftirsóttur kennari og andlegur ráðgjafi, sem býr yfir einstaklega mikilli dýpt, fagmennsku og reynslu. Hann hefur kennt Kundalini jóga í meira en 20 ár, rekur Karamkriya skólann sem sér um þjálfun Kundalini jóga kennara og Karam kriya ráðgjafa (ráðgjafa í hagnýtri talnaspeki). Hann heldur námskeið og þjálfar kennara víðsvegar í heiminum.
Guru Prem Singh; hefur kennt kundalini jóga í 32 ár. Hann hefur einnig kennt Ashtanga jóga og fimleika og keppti í fimleikum á sínum yngri árum. Hann skrifaði bókina Divine alignment sem er nokkurs konar Biblía Kundalini jógakennara í kennslu á jógastöðum. Nýlega gaf hann út aðra bók; The Heart Rules þar sem hann kennir lesandanum að leyfa hreyfingunni að koma frá hjartanu og að opna hjartað. Hann ferðast víða um heim og kennir og rekur einnig miðstöð í Los Angeles.
Yogi Bhajan gaf honum viðurnefnið Stöðumeistari (Posture master). Klókur nafli, viturt hjarta og tómt höfuð ( smart navel, wise heart and empty head ) eru einkunnarorð hans. Hans sérhæfni er fólgin í að kenna grunntækni sem er nauðsynleg til að geta ástundað jóga á sem áhrifaríkastan hátt. Hann býður líka upp á jógaþerapíu fyrir einstaklinga og notar þá ýmsar aðferðir (shiatsu, thai og jógahreyfingar) til að losa um stíflur svo andardráttur og hreyfingar flæði óhindrað. Hann hjálpar okkur að vinna með sérstök líkamleg vandamál, að finna takmörk okkar og tæki til að breyta því sem með þarf. Guru Prem Singh er auk þess tónlistarmaður og hefur gefið út fjölda geisladiska.
Sarabjit Kaur Khalsa er fædd í Kaliforníu. Hún gerðist nemandi Yogi Bhajan árið 1971. Hún lauk námi í Stjórnmálafræðum með Samskipti sem aukagrein í San Diego Háskólanum í Kaliforníu. Hún er móðir kundalini jóga á Spáni og kom þangað til að kenna Kundalini jóga árið 1979. Sarabjit situr í ráði 3HO í Evrópu.
Hari Krishan Singh stofnaði ásamt öðrum Alþjóðlegu kundalini jóga- og - Karam kriya miðstöðina í Rotterdam. Hann er Kundalini jógakennari, kennaraþjálfari í Kundalini jóga og Karam kriya kennari og ráðgjafi. Hann hefur mikla reynslu sem kennari og hefur lært hjá Shiv Charan Singh, bæði Karam Kriya og Kundalini jóga, í Hollandi og í Evrópu og ferðast víða um Evrópu til að kenna.
Hann lauk BS námi í Menningarmannfræði (Vrie Universiteit Amsterdam). Hann hefur einnig bakgrunn í ýmsum greinum af andlegum toga; Vipassana (Búddismi), Tai Chi Chuan, Sacred Geometry og hefur síðan helgað líf sitt darmískum lífsstíl sem á rætur sínar í Síkisma, Kundalini jóga og Karam kriya. Hann rekur Cherdi Kala miðstöðina í Rotterdam, þar sem þjálfaðir eru kennarar, á 1. og 2. stigi í kennaraþjálfun og kennir Kundalini jóga.
Dev Suroop Kaur er fjölhæfur tónlistarmaður og hefur gefið út fjölda geisladiska sem njóta vinsælda í kundalini-heiminum. Hún kennir Kundalini jóga og Naad yoga (jóga sem byggir á hljóði). Dev Suroop Kaur notfærir sér list hljóðsins til að ná fram heilun og umbreytingu. Hennar sérsvið eru að kenna kennurum Kundalini jóga og meðvituð samskipti auk þess að kenna öðrum að nálgast fegurðina og kraftinn sem býr í röddinni.
Dev Suroop Kaur kynntist Kundalini jóga árið 1983 og hitti kennara sinn, Yogi Bhajan, meistara í Kundalini jóga, stuttu síðar. Þá hófst langt og ríkt ferðalag andlegrar iðkunar, náms og vaxtar. Hún býr með manni sínum í Espanola, New Mexico og starfar við tónlist og sem framkvæmdastjóri.
Deva Kaur Khalsa hitti Yogi Bhajan árið 1972, og fann að Kundalini jóga gaf henni svo djúpa tilfinningu fyrir innri kyrrð að hún vissi að það væri leið til að umfaðma framtíðina. Hún hóf síðan ævilangt ferðalag sitt sem nemandi Yogi Bhajan og að kenna þessi aldagömlu, heilögu vísindi. Deva giftist manni sínum, Deva Singh og fór að kenna Kundalini jóga árið 1973. Hún hóf að þjálfa Kundalini jóga kennara árið 1996. Eitt af því sem heillar hana mest er umbreytingarfræðsla Yogi Bhajans fyrir konur. Hún skrifaði ásamt fleiri konum, bókina I am a Woman, Creative, Sacred and Invincible sem byggir á fyrirlestrum Yogi Bhajan fyrir konur og reynslu kvennanna
sjálfra. Hún er meðlimur í framkvæmdaráði KRI (Kundalini research institute) fyrir framkvæmd kennaraþjálfunar, og sömuleiðis í stjórn KRI. Hún rekur ásamt eiginmanni sínum jógastöðina Yoga Source í Coral Springs í Flórída.