Líföndun

...er einföld tækni þar sem við einbeitum okkur að önduninni til að losa um spennu og stíflur sem hafa myndast í líkama okkar.

Þessi spenna getur verið í formi vöðvabólgu eða hvers konar sársauka. Hún getur líka verið dofi eða tilfinningaleysi.

Eða kvíði, streita, andvörp, magakrampar, kulvísi, ógleði, fóbía, sorg, fíkn, skortur á sjálfstrausti, tómleiki. Í stuttu máli allt milli himins og jarðar.

Við öndum of grunnt. Með því að anda dýpra og á ákveðinn hátt losnar um spennu og þreytu og við fyllumst af endurnýjuðum krafti .

Líföndun verður alltaf dýpri og ánægjulegri reynsla því lengur sem við stundum hana. Við sættumst við sífellt stærri hluta af okkur sjálfum og það birtist í lífi okkar í aukinni sátt og lífsgleði.

Líkaminn man allt sem við höfum upplifað og jafnvel erft - við geymum allar tilfinningar í líkamanum þar til við veljum að sleppa þeim.

Þegar við bælum tilfinnningar þá höldum við niðri i okkur andanum eða heftum öndunina.

Á sama hátt getum við notað öndunina til að verða meðvituð um tilfinningar sem við höfum bælt, finna þær og sleppa þeim.

Öndunin er líka spegill á það hvernig við lifum lífinu og hvort við njótum þess að vera til. Með því að læra að anda óhikað og til fulls þá aukum við líka hæfileikann til að njóta.

Flestir segjast aldrei hafa slakað jafnvel á og í lok líföndunar.

Þeir sem hafa stundað líföndun reglulega segja margir að 10 andanir hafi verið gert þeim meira gagn en 10 ár hjá sálfræðingi.

Um námskeiðin:

Auk þess að anda mun meira en við gerum venjulega notum við tímann til að stíga aðeins út úr lífi okkar og skoða hvernig okkur líður hvert við stefnum og hverju við viljum breyta.

Hverning speglast mynstur hvers og eins í önduninni?

Við gerum ýmsar æfingar sem þjóna þeim tilgangi m.a. að undirbúa líföndunina sjálfa þannig að þessir hlutir séu komnir upp í vitund okkar. Þá verður öndunin enn dýpri og árangursríkari.

Námskeiðin henta öllum sem vilja fá aukna gleði og tilgang inn í líf sitt, aukna samkennd með sjálfum sér og öðrum og kraft til að lifa lífinu til fulls og finna taktinn við sjálfan sig.

Reynslan sýnir að þau veita þátttakendum eins konar stökkpall til að takast á við líf sitt með nýjum skilningi og léttleika.