Ýmsar greinar:

Að glata selshamnum og fjarlægjast sálina (Mbl.´02)
Kona í selshamnum er þannig tákn fyrir hina heilsteyptu konu sem er í snertingu við villta eðlið í sjálfri sér. Þannig kona er fullkomlega með sjálfri sér í stað þess að standa fyrir utan sig - veltandi því fyrir sér hvort hún sé að hegða sér samkvæmt reglunum.

Mæðgur - uppeldi (Uppeldi ´03)
Auk þess að vera fyrirmynd er móðirin fyrsti andlegi kennarinn okkar. Hún getur kennt okkur að treysta innsæinu og fylgja innri leiðsögn... Ef við höfum verið duglegar að safna í sarpinn, rækta sambandið og byggja upp gagnkvæmt traust þá eru meiri líkur á að stelpan okkar leyfi okkur að vera til staðar þegar kemur að unglingsárunum.

Mæður og dætur - (Mbl. ´02)
Múmínmamma er þessi klassíska góða mamma sem er með ráð undir rifi hverju, býr til góðar kökur og heldur saman fjölskyldunni. Hún er sterk og hún er góð og umvefjandi. Kannski dálítið gamaldags. Sennilega myndi dóttur múmínmömmu á ákveðnum aldri finnast hún hræðilega hallærisleg. Það gera allar stelpur líklega einhvern tíma. En þrátt fyrir harða gagnrýni er mamma öllum stelpum mikilvæg.

Sjálfsrækt með gleðibragði (Mbl.´03)
Mér hefur fundist það mjög mikilvægt í þessu síhugsandi þjóðfélagi að koma með mótvægi sem byggir á leik, hlátri og ríkri áherslu á líkamann og líkamsvitundina. Þá er auðveldara að tæma hugann á eftir, finna kyrrð og skoða síðan hvernig má taka til og endurraða lífsmynstrinu.

 

Greinar um líföndun:

Að elska það sem er (Mbl. ´03)
Stundum tek ég eftir því að allir í kring um mig eru orðnir svo leiðinlegir og óspennandi... Þeir eru ýmist að rífast við mig eða að mér finnst við ekkert hafa um neitt að tala lengur. Ég fer þá kannski að hugsa um að nú verði ég að breyta til - flytja eða hitta nýtt fólk eða kannski bara hentar mér ekki þetta starf lengur og kominn tími til að gera aðra hluti. ...En smám saman rennur það upp fyrir mér að það er ég sem er annað hvort útkeyrð af of mikilli vinnu eða hef verið svo dugleg að sinna öllum öðrum í kring um mig að ég missti af sjálfri mér á leiðinni.

Tíminn er líf og lífið býr í hjartanu (Mbl.)
"Til er mikill en þó hvunndagslegur leyndardómur. Allir eiga sinn þátt í þessum leyndardómi. Hver einasta manneskja þekkir hann. Flestir taka honum eins og hverjum öðrum sjálfsögðum hlut og undrast ekki vitund. Þessi leyndardómur er tíminn. Það eru til dagatöl og klukkur sem mæla tímann. En það segir ekki alla söguna. Allir þekkja að ein klukkustund getur virst vara heila eilífð og eins getur ein klukkustund liðið eins og örskot, allt eftir því hvað maður upplifir. Því tími er líf. Og lífið býr í hjartanu."

Farðu á staði sem þú óttast (Mbl.´02)
Í nútímasamfélagi þar sem hraðinn gengur fyrir öllu og álagið er stöðugt, er tígrisdýrið sem ógnar lífi okkar ekki lengur úti í skóginum, heldur miklu fremur innra með okkur sjálfum. Við erum stöðugt ómeðvitað að búa okkur undir bardagann sem aldrei kemur svo líkaminn er alltaf í viðbragðsstöðu. Þegar streita er orðin viðvarandi, förum við að anda grynnra til að láta fara lítið fyrir okkur, halda niðri í okkur andanum eða hefta öndunina.

Með óttann við stýrið (Mbl ´04)
Ég fór að velta því fyrir mér hversu mikið við látum óttann stjórna okkur. Við finnum hann kannski ekki alla daga en hann er fljótur að segja til sín þegar við þurfum óvænt að horfast í augu við hvað allt er breytingum háð. Allt í einu kemur kvíðahnútur í magann og hugsanirnar verða órólegar. Við erum hrædd við að eldast, við að verða veik, við að deyja, hrædd við tilfinningarnar okkar og við okkur sjálf.

Dauðinn í lífinu (Mbl. ´01)
Við hin sem erum ekki komin alveg eins nálægt dauðanum og sá sem liggur banaleguna erum alltaf að upplifa dauðann í smækkaðri mynd.-Og við getum notað þessar litlu dauðastundir til að undirbúa okkur undir þessa mikilvægu stund í lífi okkar allra og til að lifa meira til fulls.

Lifa dýpra (Mbl.)
Líföndun er ekki meðferðarform heldur mætti kannski segja að hún sé eins konar stefnumót við lífið eða okkur sjálf, fyrir suma er hún hláturstund. Hún er ekki lausn á öllum okkar vandamálum. Þau verðum við samt að leysa. En kannski verðum við enn meiri hetjur ef við lærum af börnunum okkar að hugsa minna og finna meira; lifa dýpra, elska stærra, hlæja hærra.

Lína og líföndun (Mbl. ´02)
Lína Langsokkur sagði einhvern tíma: "Æ, já tíminn líður og maður byrjar að verða gamall. Í haust verð ég tíu ára og þá er maður búinn að lifa sína bestu daga." Hvað ætli sé mikill sannleikur í því amk fyrir sum okkar? Við verðum þrítug, fertug og fimmtug og alltaf finnst okkur við vera orðin dálítið gömul og búin að missa af lífinu.

Þegar lífið eltir okkur uppi
(Mbl. ´99)
Okkur er innrætt að vera alltaf jákvæð og "standa okkur". Samfélagið býður upp á ótal möguleika til að gera okkur glaðan dag og láta okkur líða vel. En hvað ef okkur líður ekki vel? Getum við leyft okkur að vera bara sorgmædd eða reið eða misheppnuð eða einmana og finna það

Öndunin er lykillinn að líðandi stundu - líföndun - hvað er það? (Mbl.´99)
Öndunin okkar segir mikið um það hver við erum, hvernig okkur líður og hvernig við nálgumst lífið. Sumir taka alltaf inn mjög lítið loft þegar þeir anda og kannski speglast það í lífi þeirra á þann hátt að þeir lifa ekki lífinu til fulls

 

 

Hómópatía

Hómópatía fyrir foreldra (birt í Uppeldi, vor 2003)
Hómópatía er heildræn meðferð sem hefur það að markmiði að hvetja líkamann til að lækna sig sjálfur... Hómópatía hefur reynst mörgu foreldrinu ómetanleg hjálp... Til dæmis hefur hómópatía reynst vel fyrir ofvirk börn, börn með asthma, ofnæmi, exem, migreni, blöðrubólgu, börn sem pissa undir og til að hjálpa barni í gegn um sorg svo eitthvað sé nefnt..

Hómópatía á meðgöngu og í fæðingu (Uppeldi, vetur 2004)
Hómópatía er meðferðarform sem hjálpar til við að örva eðlislæga tilhneigingu líkamans til að lækna sig sjálfur. Hún er algerlega skaðlaus, veldur engum aukaverkunum og er þess vegna mjög örugg aðferð til að auka heilbrigði og bæði andlega og líkamlega vellíðan móður og barns... Ananda Zaren, hjúkrunarkona, ljósmóðir og hómópati í Santa Barbara í Kaliforníu hefur notað hómópatíu í hundruðum fæðinga.... Remedíurnar bæta ekki aðeins heilsu móðurinnar heldur nýtast þær líka fóstrinu.

Hómópatía - hver ber ábyrgð á heilsu okkar (Tímarit Lyfjafræðinema ´00)
Eitt af grundvallaratriðunum hómópatíunnar er það að öll einkenni sem líkaminn birtir séu merki þess að líkaminn sé að endurheimta náttúrulegt jafnvægi sitt. Í stað þess að bæla þessi einkenni þarf að sjá þau sem tákn um að sjálfsheilunarkerfi líkamans hafi verið sett í gang. Þessi einkenni sýna okkur hvernig meðhöndlun líkaminn þarf til að styrkja þessa sjálfslækningu.

 

Nudd

Snertingin er ein af grunnþörfum mannsins (Mbl ´99)
Nudd er eitt elsta meðferðarform sem til er og gott nudd veitir okkur þessa nærandi snertingu sem við öll þurfum. Hlutverk nuddarans er fyrst og fremst að kenna okkur að hlusta á líkamann, hjálpa okkur að taka eftir hvar við geymum spennu með því að beina athygli okkar að henni. Þetta tekur okkur út úr huganum um stund og það eitt og sér veitir okkur djúpa hvíld.

 

Jóga

Með óttann við stýrið (Mbl ´04)
Mjög margir virðast sækja líkamsrækt, ekki fyrst og fremst til að líða vel heldur til að líta vel út. Og líkamsræktin verður eins og allt annað eitthvað sem á að gerast hratt og gefa skjótan árangur. Ef við erum úrvinda eftir leikfimitíma, þá hlýtur hann að hafa borið árangur. Hvort líkamsræktin kemur okkur í jafnvægi eftir eril dagsins eða nærir okkur andlega virðist ekki skipta eins miklu máli.

Streita rænir þér frá sjálfum þér (Mbl ´05)
Kundalini jóga er aldagömul tegund af jóga og býður upp á mjög virkar leiðir til að takast á við streitu og álag nútímans. Það er hannað fyrir venjulegt fjölskyldufólk sem lifir erilssömu lífi og hefur ekki of mikinn tíma aflögu né eirð í sér til að setjast niður mitt í öllu álaginu og slaka á eða hugleiða tilgang lífsins.

Hvað er kundalini jóga?
Kundalini jóga er stundum kallað móðir allrar jógaiðkunar. Það var kennarinn Yogi Bhajan sem færði Vesturlandabúum Kundalini jóga fyrst og þróaði mjög markvisst kerfi sem þjónar hinum venjulega manni. Það er fyrst og fremst leið til að koma jafnvægi á allra innri starfsemi, eins og innkirtlakerfi, taugakerfi og meltingu. Og til að styrkja bæði líkama og huga svo við getum betur tekist á við þau verkefni sem lífið lætur okkur í té. Kundalini þýðir "lokkur úr hári hins heittelskaða" og er líkingamál sem minnir okkur á að Guð eða frumkraftur alheimsins býr í okkur öllum. Allir sem hafa einhvern tíma upplifað einhvers konar andlega upplyftingu, hvort sem það er í kirkju , í hugleiðslu eða við aðra andlega iðkun, hafa fundið kundalini orkuna sína lyftast upp.