Sadhana

Sadhana er morguniðkun jóga.  Aðgangur í sadhana er ókeypis og öllum opinn. 

Við förum í sadhana til að hreinsa undirvitundina og styrkja sambandið við sálina.  Til að minna okkur á hver við erum og til að styðja hvert annað.  Undirvitundin stýrir 60% af gerðum okkar.  

Í sadhana leyfum við ómeðvituðum tilfinningum að koma upp og tökumst á við þær með aðstoð möntru og hlutlausum huga.  Þannig hreinsum við undirvitundina og hugurinn fer að skynja ljós vitundarinnar.  Við getum gert okkar eigið sadhana heima en ef við iðkum saman í hóp þá verða áhrifin margföld.

Tímar:

5.30-6.00   Lesið upp úr Japji (söngur sálarinnar)

6.00-7.00    Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan

7.00-8.00    Hugleiðsla (sungin)

Why do we get up for morning sadhana? Because we have to face the whole day, and we cannot face the day without a constant level of energy. People love you for three things only: wisdom, commitment, and consistency.”  Yogi Bhajan            

Orka og andleg næring

Þriðjudaga og fimmmtudaga kl. 17.30

Fjölbreyttir tímar með áherslu á að styrkja og endurnæra líkamann og lyfta andanum. Hugleiðsla og slökun í lok hvers tíma.

Hressandi hádegisjóga

Mánudaga og miðvikudaga kl 12.00

Endurnærandi hádegistímar. Jóga í hádeginu er góð leið til að brjóta upp daginn, slaka á og auka einbeitinguna.

Kraftur og jafnvægi (karlar)

Fimmtudaga kl 20.30

Kraftmikið líkamlegt jóga til að losa um streitu og spennu. Leysir orku úr læðingi og leyfir henni að flæða óhindrað á ný. 

Yoga nidra

Þriðjudaga kl 16.30

Djúpslökun og endurnæring. Opnir tímar.

Sadhana 

Laugardaga kl. 5.30 að morgni - annan hvern laugardag

Í Sadhana erum við að hreinsa undirvitundina og styrkja sambandið við sálina okkar.  Við sigrumst á veikleikum okkar og styrkjum okkar sanna sjálf.  Aðgangur í Sadhana er ókeypis og öllum opið.

Heilunarhugleiðsla

Föstudaga kl 12.00

Allir velkomnir að koma og hugleiða og taka á móti ljósi og heilun. 

Frjáls framlög.  

Nýtt: Fyrirlestrar

Miðvikudaga kl 20.30

Nýtt: Hatha jóga og jóga nidra með Önnu Ingólfs

Þriðjudaga og fimmtudaga kl 12.00

Farið verður í undirstöðuatriði í hatha jóga. Meira


Nýtt: Mindfulness - núvitund gegn streitu með Ásdísi Olsen

þriðjudaga kl 10.30

Hugarró og vellíðan í staðinn fyrir áhyggjur og streitu. Hefst 9. okt. Meira


Nýtt: Listin að vera kona Námskeið

Miðvikudaga kl 17.45-19.15

Við ætlum að fjalla um listina að VERA meira og GERA minna. Um konuna sem andlega veru. Og læra að næra hana í daglegu lífi.  Meira