Kvennahringur

Næsti kvennahringur verður fimmtudaginn 2.maí kl 20.15.

Hann er alltaf fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði á sama tíma.


Við ætlum að kynna Kvennabúðirnar “Ég er kona, skapandi, heilög, ósigrandi.” Fjalla um tilgang þeirra og hvernig kvennaviska jógafræðanna getur eflt okkur og styrkt. Og svo fáum við smá innsýn inn í það hvað við gerum í kvennabúðum.


Kvennahringnum er ætlað að vera vettvangur fyrir konur til að koma saman og styrkja hver aðra í listinni að vera kona.


Konan dvelur í sköpunarkrafti sínum en gerir sér oft ekki grein fyrir hversu mikið hún getur haft áhrif á eigið líf.  Líf hennar er eins og hún skapar það.  


Við ætlum að skoða leiðir til þess að...


• Byggja upp öflugt sjálfstraust

  1. Halda líkamanum ungum, geislandi, sveigjanlegum og fallegum

  2. Eiga upplyftandi samskipti við aðra / karlmenn

  3. Borða mat sem gefur okkur orku og kraft

  4. Finna tilgang lífsins með því að gefa sköpunarkraftinum nýtt líf

  5. Að upplifa kraftinn sem býr í möntrum til að umbreyta lífi okkar

  6. Fagna í takti Gyðjunnar innra með okkur


Kvennahringurinn byggir á kvennavísindum jógafræðanna eins og Yogi Bhajan, meistari í Kundalini jóga kenndi.

Yogi Bhajan lagði mikla áherslu á að kenna konum að finna styrkinn sem felst í því að vera kona. Í Kvennahringnum ætlum við að læra um og tileinka okkur þessi kvennavísindi og styrkja hver aðra í að blómstra sem konur. 


The nucleus of strength in the entire universe is woman”
Yogi Bhajan


Kvennahringurinn gefur okkur tækifæri til að taka okkur stund mitt í erilsömu lífi til að tengja við visku okkar og finna frelsið innra með okkur. Tími til að endurnærast, hlaða batteríin og finna jafnvægi í hávaðasömum heimi. Að leyfa okkur að tengja við nýjar víddir hið innra, hlæja, fylla líkamann af orku og finna stuðning í hjartahlýju samfélagi kvenna.  


“Ég hef heyrt og séð í gegnum tilraunir mannsins að í aldaraðir hefur konan breytt flæði tímans, flæði þjóða og stefnu fólksins.”  Yogi Bhajan









Orka og andleg næring

Þriðjudaga og fimmmtudaga kl. 17.15

Miðvikudaga kl 12.00

Fjölbreyttir tímar með áherslu á að styrkja og endurnæra líkamann og lyfta andanum. Hugleiðsla og slökun í lok hvers tíma.


Nýtt: Grunntækni og teygjur

Mánudaga kl 17.15

Þægilegir tímar fyrir byrjendur og ágætt tækifæri fyrir lengra komna til að skerpa á tækninni. 

Nýtt: Kraftjóga

Mánudaga kl 18.45

Kröftugt jóga sem hreyfir við orkunni, byggir upp styrk og úthald.   Veitir góða útrás og djúpa slökun á eftir.

Nýtt: Styrkjum miðjuna

Miðvikudaga kl 17.15

Naflasvæðið er afar mikilvægt samkvæmt jógafræðunum - gefur aðgang að orkunni okkar, skerpir viljann, styður við rétta líkamsstöðu og hjálpar okkur að anda rétt.

Kraftur og jafnvægi (karlar)

Miðvikudaga kl 20.15

Kraftmikið líkamlegt jóga til að losa um streitu og spennu. Leysir orku úr læðingi og leyfir henni að flæða óhindrað á ný. 

Sadhana 

Lau. kl. 6 að morgni

Í Sadhana erum við að hreinsa undirvitundina og styrkja sambandið við sálina okkar.  Við sigrumst á veikleikum okkar og styrkjum okkar sanna sjálf.  Aðgangur í Sadhana er ókeypis og öllum opið.


Heilunarhringur

Miðvikudaga kl 18.45

Allir velkomnir að koma og leggjast inn í heilunarhringinn og taka á móti ljósi og heilun. 

Frjáls framlög.  

Nýtt: Opið kvöld

Fimmtudaga kl 20.15

Á Opnu kvöldi ætlum við að bjóða upp á margt skemmtilegt eins og Kvennahring, hugleiðslukvöld og spennandi fyrirlestra.